Skilmálar
Natríum ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru sett fram með vsk inniföldum en sendingakostnaður bætist svo við áður en greiðsla fer fram. Alltaf er í boði að sækja vöruna til okkar en ekki er alltaf hægt að tryggja að hægt sé að senda vöru.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru, gegn því að sölureikning sem sýnir dagsetningu kaupa með fullnægjandi hætti, sé framvísað. Varan þarf að vera hrein og ósködduð að öllu leyti svo hægt sé að skila henni eða skipta. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við það verð vörunnar sem greidd var fyrir vöruna.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Sé varan ekki til á lager, mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma keyptrar vöru. Alltaf er í boði að sækja vöruna til okkar samkvæmt samkomulagi, en ekki er alltaf hægt að tryggja að hægt sé að senda vöru. Af öllum pöntunum sem dreift er af Dropp ehf. gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp ehf. um afhendingu vörunnar. Natríum ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Dropp.
Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Natríum ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.
Natríum ehf - Bragagötu 26a